Hrannar Pétursson hefur boðað fréttamenn á sinn fund á heimili sínu klukkan 11 en þar mun hann tilkynna formlega framboð sitt til forseta Íslands.
Í desember greindi Skarpur á Húsavík og Kjarninn í kjölfarið frá því að Hrannar Pétursson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Vodafone, væri að íhuga forsetaframboð. Þar staðfesti hann að margir hefðu komið að máli við sig og hann hefði verið að skoða málið.
Hrannar rekur eigið upplýsinga- og samskiptafyrirtæki. Hann starfaði sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu þar til í október síðastliðnum.
Í tilkynningu kemur ekki fram nafn forsetaframbjóðandans sem ætlar að stíga fram klukkan 11 á Garðastræti 47 en þar segir að framsýnn og jafnréttissinnaður forsetaframbjóðandi muni stíga inn í sviðsljósið.
Samkvæmt þjóðskrá er Hrannar Pétursson búsettur í húsinu ásamt fjölskyldu sinni og eins er félagið Forsetaframboð Hrannars þar til húsa en félagið var stofnað nú í mars.
Allt stefnir í metfjölda frambjóðenda í forsetakosningunum 25. júní næstkomandi. Þegar hafa tíu manns gefið kost á sér en mest hafa sex verið í kjöri áður, fyrir fjórum árum. Með Hrannari eru framboðin orðin ellefu talsins og næsta víst að fleiri eigi eftir að bætast í hópinn á næstu vikum.