Vill ekki þiggja forsetalaun

Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen.
Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen. mbl.is/Freyja Gylfa

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðsins og for­setafram­bjóðandi, seg­ist ekki ætla að þiggja for­seta­laun nái hann kjöri sem for­seti Íslands. Þetta kom fram í viðtali við hann í sjón­varpsþætt­in­um Eyj­an á Stöð 2 síðdeg­is. 

„Ég mun ekki þiggja laun á Bessa­stöðum. Ég fæ eft­ir­laun sem eru um 40%. Ég vil draga úr pjatti og þess hátt­ar. Færa for­set­ann heim og gefa fólk­inu aðgang að Bessa­stöðum. Þá held ég að það sé ekki við hæfi að hafa 2,5 millj­ón­ir á mánuði í laun,“ sagði Davíð. 

Seg­ir hann að með eft­ir­laun­un­um yrðu laun hans meira á pari við ráðherra.

„Ég veit hvernig hún Ástríður [Thor­ar­en­sen, eig­in­kona Davíðs] er, hún get­ur ekki hugsað sér pjatt og snobb og að menn séu að glenna sig hér og þar. Þá held ég að það sé við hæfi að þjóðin fái mig frítt,“ sagði Davíð.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka