Alls hafa 5.332 kosið utankjörfundar fyrir alþingiskosningarnar sem fara fram 29. október. Af þeim hafa 3.280 kosið á höfuðborgarsvæðinu og 453 atkvæði hafa borist erlendis frá. Fleiri hafa kosið utan kjörfundar fyrir þessar alþingiskosningar þær síðustu, samkvæmt upplýsingum frá Bryndísi Bachman fagstjóra þinglýsinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
„Nei, ekki ennþá. Við fylgjumst með og förum reglulega inn í klefana,“ segir Bryndís spurð hvort stimplum hafi verið stolið inn í kjörklefunum en í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn var stimpli með listabókstaf Framsóknarflokksins, B, stolið í byrjun októbermánaðar.
Frétt mbl.is: Stimpli Framsóknar stolið?