Lögfræðingur Rauða krossins hefur ekki áhyggjur því að hætta á mansali skapist með breytingum sem gerðar voru til bráðabirgða á útlendingalögum í gær, líkt og dómsmálaráðherra hefur talað um.
„Ef þetta er samþykkt og það spyrst út að hér sé löggjöf sem sé sérsamin fyrir fólk með börn þá hafa vaknað spurningar hjá mér og fleiri fagaðilum um hvort það skapi raunverulega hættu á mansali. Að hingað komi fólk með börn og fái sérmeðferð,“ sagði Sigríður Andersen dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær.
Guðríður Lára Þrastardóttir, lögfræðingur hjá Rauða krossinum, deilir ekki áhyggjum ráðherrans. Hún áttar sig í raun ekki á ummælunum, enda sér hún ekkert í lögunum sem gæti aukið hættuna á mansali.
„Í fyrsta lagi þá gilda þessi lög bara um fólk sem er nú þegar komið hingað til lands. Fólk sem kemur hingað í dag fellur ekki undir lögin. Þetta gengur ekki upp að því leyti. Í öðru lagi þá þýðir þetta ekki að allir sem hingað koma og fari í Dublinarferli, fái hæli. Þetta gildir bara um þá sem hafa verið hérna í níu mánuði eða lengur. Það sama á við um 15 mánuðina. Þetta þýðir ekki að fólk sem kemur hingað í leit að alþjóðlegri vernd, eigi miklu betri möguleika. Stjórnvöldum er einfaldlega bara settur þrengri tímarammi til að leysa úr málunum,“ segir Guðríður.
Í þeim örfáu tilfellum þar sem fólk hefur komið hingað til lands með börn sem það á ekki hefur lögregla tekið á málum, að sögn Guðríðar. Þeim börnum hafi annað hvort verið komið til síns heima eða í skjól. Hún segir ekkert benda til að slíkum tilfellum muni fjölga. „Hafi stjórnvöld raunverulegar áhyggjur af þessu þá þarf auðvitað að grípa til aðgerða til að auka fræðslu og skýra verklagsreglur í tengslum við skimun og rannsókn á mögulegu mansali svo við getum þá veitt þessum börnum viðeigandi aðstoð og vernd.“
Hún segir líkamsrannsóknir hafa verið framkvæmdir hér á landi á börnum og foreldrum til að ganga úr skugga um fjölskyldutengslin séu til staðar. Þær hafi þó ekki verið framkvæmdar á hælisleitendum. „Það á því ekki að vera neitt mál að ganga úr skugga um það.“