VG með tæp 30% fylgi

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vinstri græn yrði stærsti flokk­ur­inn á Alþingi ef kosið yrði í dag, með rétt tæp­lega 30 pró­senta fylgi. Þetta sýna niður­stöður nýrr­ar könn­un­ar Frétta­blaðsins, Stöðvar 2 og Vís­is. Flokk­ur­inn var með tæp­lega 29 pró­senta fylgi fyr­ir viku og er mun­ur­inn inn­an vik­marka.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fengi rúm­lega 22 pró­sent at­kvæða, sem er sama fylgi og flokk­ur­inn var með í könn­un fyr­ir viku. Þá er Miðflokk­ur­inn með rúm­lega 9 pró­senta fylgi, Pírat­ar eru með 8,5 pró­sent, sem er 2,9 pró­sentu­stig­um minna en flokk­ur­inn var með í könn­un blaðsins fyr­ir viku. Sam­fylk­ing­in er með rúm­lega 8 pró­senta fylgi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með rúm 7 pró­sent og Flokk­ur fólks­ins með rúm­lega 6. Viðreisn er svo með 3,3 pró­senta fylgi og Björt framtíð með rúm­lega 3,6 pró­sent.

Ef þetta yrðu niður­stöður kosn­inga fengju Vinstri græn 21 þing­mann og yrðu lang­stærsti flokk­ur­inn á þingi. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fengi 16 þing­menn, Miðflokk­ur­inn og Pírat­ar fengju sex menn hvor, Sam­fylk­ing­in og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengju 5 menn hvor og Flokk­ur fólks­ins fjóra menn. Hvorki Björt framtíð né Viðreisn fengju kjörna þing­menn.

Hringt var í 1.322 manns þar til náðist í 804 sam­kvæmt lag­skiptu úr­taki 10. októ­ber. Svar­hlut­fallið var því 60,8 pró­sent.

Alls tóku 66 pró­sent þeirra sem náðist í af­stöðu til spurn­ing­ar­inn­ar. Um 10 pró­sent sögðust ekki kjósa eða ætla að skila auðu, 13 pró­sent sögðust vera óákveðin og tæp­lega 11 pró­sent svöruðu ekki.

Frétt Vís­is um könn­un­ina

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert