Íslenska þjóðfylkingin, sem skilaði meðal annars inn framboðslistum í báðum Reykjavíkurkjördæmunum í dag, fékk frest hjá yfirkjörstjórn Reykjvíkurkjördæmis suður til klukkan 18 í dag til að skila inn fullnægjandi framboðslista.
22 frambjóðendur eru á lista flokksins, líkt og gerð er krafa um í kjördæminu, en undirskrift eins frambjóðanda vantaði. Aðeins var 21 undirskrift á framboðslistanum. Flokkurinn fær, líkt og áður sagði, frest til klukkan sex í dag til að fá undirskrift þess frambjóðanda sem vantar.