Íslenska þjóðfylkingin mun ekki bjóða fram í alþingiskosningunum sem fram fara eftir tvær vikur. Flokkurinn hefur tilkynnt yfirkjörstjórnum að allir framboðslistar flokksins hafi verið dregnir til baka.
„Við fengum þessa afturköllun frá þeim í morgun. Við höfðum gert athugasemdir við meðmælendalistann,“ segir Erla S. Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, í samtali við mbl.is. Athugasemdirnar snerust að því hvort um réttar undirskriftir væri að ræða.
Íslenska þjóðfylkingin skilaði inn framboðslistum í fjórum kjördæmum: Suðurkjördæmi, Suðvesturkjördæmi, Reykjavíkurkjördæmi norður og Reykjavíkurkjördæmi suður.
Frestur til að skila inn framboðslistum rann út á hádegi í gær. Undirskrift vantaði hjá einum frambjóðanda Íslensku þjóðfylkingarinnar á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og fékk flokkurinn frest hjá yfirkjörstjórn kjördæmisins til klukkan 18 í gær til að skila inn fullnægjandi framboðslista. Nú hefur flokkurinn hins vegar dregið alla fjóra framboðslista sína til baka.