Ný ríkisstjórn leggur áherslu á að efla dreifikerfi raforku frekar en nýjar virkjanir. Hætt verður við að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna þess í stað verði skoðað að leggja á komu- og brottfarargjöld. Þetta kom fram í kvöldfréttum Rúv.
Ekkert hefur verið gert opinbert um nýjan stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Á morgun munu stofnanir flokkanna greiða atkvæði um hann.
Fjármagnstekjuskattur mun hækka úr tuttugu í tuttugu og tvö prósent en að álagningunni verði breytt. Fæðingarorlofið mun einnig verða lengt í áföngum í tólf mánuði.
Fyrr í kvöld greindi Kjarninn meðal annars frá því að samkvæmt stjórnarsáttmálanum yrði fjármálakerfið endurskipulagt sem og fæðingarorlof lengt.