Íslenska þjóðfylkingin kynnti í dag framboð sitt í Reykjavík og fólkið í þremur efstu sætunum, en þau skipa Guðmundur Karl Þorleifsson, formaður flokksins, Hjördís Bech Ásgeirsdóttir og Jens G. Jensson.
Helstu áherslumál flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar eru, að því er fram kemur í fréttatilkynningu, að draga til baka lóð undir mosku og allar leyfisveitingar vegna viðbyggingar á bænahúsi múslíma í Öskjuhlíð. Þá hafnar flokkurinn einnig þéttingu byggðar á kostnað grænna svæða.
Meðal annarra áherslumála er að endurvekja verkamannabústaðakerfið, gera Reykjavík fjölskylduvænni með opnum svæðum, hafa gjaldfrjálst í strætó, flytja stofnanir borgarinnar burt úr miðbænum, hreinsa götur reglulega til að draga úr svifryki og byggja hjúkrunarheimili og íbúðir fyrir aldraða.
Þá hafnar þjóðfylkingin borgarlínu en vill þess í stað nýta það fjármagn sem Vegagerðin á að greiða til verkefnisins í uppbyggingu mislægra gatnamóta, en með því móti geti umferð farið „óhindrað farið eftir aðalstofnæðum borgarinnar“.