„Ekkert af því sem var í þessum kærum var talið þess efnis að það væri hægt að ógilda kosningarnar og það er meginatriðið að mínu mati,“ segir Eva Sveinbjörnsdóttir oddviti Árneshrepps. Tveimur kærum um ógildingu sveitarstjórnarkosninga í Árneshreppi hefur verið hafnað af þriggja manna kjörnefnd sem sýslumaðurinn Vestfjörðum skipaði eftir sveitastjórnarkosningarnar.
Fyrri kæran kom frá Sighvati Lárussyni. Hann er einn þeirra fimmtán einstaklinga sem voru gerðir afturreka með lögheimilisflutning sinn í Árneshrepp eftir skoðun Þjóðskrár Íslands í aðdraganda kosninga og strikaðir út af kjörskrá hreppsins í kjölfarið. Taldi hann þá ákvörðun fela í sér grófa mismunun.
Hin kæran var frá þeim Elíasi Svavari Kristinssyni og Ólafi Valssyni sem gerðu athugasemdir við fjölmörg atriði varðandi framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna, en aðallega laut kæran þó að gildi kjörskrár í hreppnum.
Nefndin hafnaði kröfum kærendanna um ógildingu sveitarstjórnarkosninganna í hreppnum og kveðst Eva vera ánægð með þá niðurstöðu.
Hún er búin að fara lauslega yfir úrskurði kærunefndarinnar, sem voru annars vegar fimm og hins vegar þrettán blaðsíðna langir, og segist vera sátt við það sem þar kemur fram. „Ekkert af því sem var í þessum kærum var talið þess efnis að það væri hægt að ógilda kosningarnar og það er meginatriðið að mínu mati,“ segir Eva.
Kostnaðurinn við vinnu nefndarmannanna fellur á Árneshrepp samkvæmt 100. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar og er hún ekki alveg jafn sátt við það. „Ég er náttúrulega ekkert voðalega ánægð með það, en þannig er þetta bara,“ segir Eva.
Spurð hvort að hún viti hversu hár kostnaðurinn er segir hún reikninginn ekki enn hafa borist hreppsnefndinni. Hún gæti hins vegar vel trúað því að reikningur vegna vinnu lögfræðinganna þriggja sem skipuðu nefndina nemi hátt í milljón á mann.
Eva samsinnir að því að slík upphæð sé vissulega högg fyrir jafn lítið sveitarfélag og Árneshrepp. „Það eina sem að við í nýkjörinni hreppsnefnd getum gert er að leita ásjár hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna mikils stjórnsýslukostnaðar og biðja um styrk vegna þessa.“
Engin slíkt vinna er þó farin í gang, enda nýkjörin hreppsnefnd ekki búin að halda sinn fyrsta fund, en Eva vonast þó til að hann verði haldinn eftir helgi. „Ég er reyndar ekki búin að ná í einn þessara hreppsnefndarmanna, en ég geri ráð fyrir að það sé ekkert til fyrirstöðu að fyrsti fundurinn verði haldinn næsta mánudag,“ segir hún.