Jakob Frímann Magnússon tónlistar- og athafnamaður er genginn til liðs við Flokk fólksins og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flokki fólksins.
„Ég hef hrifist af stefnumálum Flokks fólksins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi. Það er sjálfsögð krafa að allir fái lifað mannsæmandi lífi í einu af auðugustu samfélögum heims. Hér á enginn að búa við bág kjör að afloknu ævistarfi, hlúa þarf betur að þeim sem hafa lent í áföllum eða búa við skerta orku og allir eiga að njóta jafnra tækifæra til menntunar og tómstundastarfs. Alvöruvelferðarsamfélag byggist á heilbrigðu samhengi milli verðmætasköpunar og mannúðar,“ er haft eftir Jakobi í tilkynningu.
Jakob Frímann er stofnandi Stuðmanna og hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum. Hann var m.a. sendifulltrúi utanríkisþjónustunnar, sat á þingi sem varaþingmaður Samfylkingarinnar, gegndi stöðu framkvæmdastjóra miðborgarmála í áratug, var formaður Félags tónskálda og textahöfunda um árabil, formaður, STEFS, Sambands tónskálda og textahöfunda, formaður SAMTÓNS, stjórnarformaður ÚTÓNS – Útflutningsskrifstofu tónlistarinnar og stofnaði umhverfissamtökin Græna herinn.