Samfylkingin vill flýta uppbygginu Borgarlínu, lögfesta loftslagsmarkmið um 60 prósent samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, hið minnsta, fyrir árið 2030 og hefja undirbúning á svokallaðri Keflavíkurlínu.
Þetta kom fram í ræðu Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, um kosningaáherslur flokksins fyrir alþingiskosningar í haust, sem haldinn var í Aurora basecamp í Hafnarfirði í dag.
„Við ætlum að hefja kraftmikla sókn gegn loftslagsbreytingum sem jafnast á við stærstu samfélagsverkefni 20. aldar, raflýsingu og hitaveitu, lagningu síma og þjóðvega,“ sagði Logi í ræðu sinni, „til þess þurfum við nýja nálgun og alvöruaðgerðir strax á öllum sviðum samfélagsins.“
Fleiri áherslumál flokksins í loftlagsmálum, sem er einn af fjórum köflum kosningastefnunnar, eru uppbygging Landlínu, heildstætt almenningsvagnanet svo einfaldur og raunhæfur kostur verði fyrir fólk að ferðast um Ísland án einkabíls.
Kosningaáherslur Samfylkingarinnar bera yfirskriftina Betra líf – fyrir þig, þína fjölskyldu og komandi kynslóðir og skiptast í fjóra hluta: fjölskyldur í forgang, sterkara samfélag, alvöruaðgerðir í loftslagsmálum og frjálst og framsækið Ísland.
Samfylkingin vill greiða fleiri fjölskyldum hærri barnabætur í hverjum mánuði þannig að barnafjölskyldur með meðaltekjur fái allt að 54.000 kr. í vasann mánaðarlega og hækka grunnlífeyri eldra fólks.
Logi boðaði hærri veiðigjöld á íslensk útgerðarfélög og endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Þá leggur flokkurinn áherslu á haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna við Evrópusambandið, að stjórnarskrármálið verði klárað á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs.