Vill skila afgangi úr ríkissjóði til almennings

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins kynnti kosningastefnu flokksins á blaðamannafundi …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins kynnti kosningastefnu flokksins á blaðamannafundi í Hörpu í dag. Eggert Jóhannesson

Miðflokkurinn vill skila afgangi úr ríkissjóði til almennings og að hver ríkisborgari fái greitt auðlindagjald á fullveldisdaginn, 1. desember ár hvert. Þá leggur flokkurinn einnig til að allir Íslendingar muni eiga rétt á almennum heilbrigðisskimunum.

Þetta kom fram í ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins á blaðamannafundi sem fór fram í Hörpu í dag, þar sem kosningaáherslur flokksins fyrir alþingiskosningar í haust voru kynntar. 

10 ný réttindi fyrir íslensku þjóðina

„Það sem ég kynni nú felur í sér algerlega nýja nálgun í íslenskum stjórnmálum. Þetta byggist að nokkru leyti á reynslu minni af því hvað þarf til til þess að breytingar nái fram að ganga. Því að breytingar, sérstaklega breytingar sem skipta máli mæta alltaf miklum hindrunum þannig það þarf að finna leiðir til að ryðjast í gegnum þær hindranir,“ segir Sigmundur í ræðu sinni. „Að nokkru leyti er þetta kannski spurning um að setja stjórnmálin og ríkið í þá stöðu að þurfa að standa sig.“

Kosn­inga­áhersl­ur Miðflokksins bera yf­ir­skrift­ina 10 ný réttindi fyrir íslensku þjóðina, og skiptist í eftirfarandi hluta: betri ríkisrekstur fyrir alla, auðlindagjald fyrir alla, heilbrigðisskimun fyrir alla, eignir fyrir alla, hlutdeild í fjármálakerfinu fyrir alla, jafnræði gagnvart ríkinu fyrir alla, jafnrétti óháð búsetu fyrir alla, jafn réttur óháð heilsu og aldri fyrir alla, jafnræði í rekstri fyrir alla og tjáningarfrelsi fyrir alla.

Sumar áherslurnar snúi að því að endurheimta réttindi sem að einhverju leyti hafi glatast en í öllum tilvikum sé um að ræða nýja leið til þess að „tryggja það sem eiga að vera réttindi okkar allra Íslendinga“ en feli um leið í sér „mjög jákvæða framþróun samfélagsins,“ að sögn Sigmundar.

Eitt af því sem Miðflokkurinn leggur til er að allir fullorðnir íslenskir ríkisborgarar fái helming afgangs úr ríkissjóði endurgreiddan til jafns á fullveldisdaginn 1. desember árið á eftir, verði ríkissjóður rekinn með afgangi. Hinum helmingnum verði varið í endurgreiðslu skulda ríkissjóðs eða í varsjóð teljist það hagkvæmara.

„Það skapar hvata fyrir stjórmálamenn, stofnanir og kerfið að fara vel með skattfé því menn munu þurfa eftir árið að útskýra hvers vegna þeir geta ekki skilað neinu til baka ef þeir standa sig ekki. Ávinningurinn deilist jafnt meðal almennings. Fyrir vikið er þarna kominn sterkur hvati til að minnka báknið. Allir hafa þann sameiginlega hvata ef svo má segja.

Þetta hvetur líka almenning til þess að taka þátt í verðmætasköpun. Allir njóta góðs af þegar fyrirtækjunum og ríkinu gengur vel. Þetta er hvatakerfi fyrri heila þjóð sem um leið setur stjórnmála menn í þá stöðu að fara betur með skattfé almennings og auka tekjur ríkisins eins og kostur er því það er auðvitað hin hliðin á þessu, hin leiðin til að ná afgangi í ríkisrekstri er að auka verðmætasköpun í landinu. Allir munu hafa hag af því þegar það tekst,“ segir Sigmundur.

Boða nýja nálgun á gjaldtöku vegna auðlinda

Þá boðar Miðflokkurinn nýja nálgun á gjaldtöku vegna auðlinda. Erfitt mál sem hefur verið óleyst viðfangsefni stjórnmálamanna áratugum saman, að sögn Sigmundar. Nýja nálgunin felur það í sér að hver ríkisborgari fái greitt auðlindagjald á fullveldisdaginn 1. desember ár hvert.

„Þá eru stjórnvöld komin í þá stöðu að loksins þurfa að klára málið og leysa innheimtuna til þess að standa undir gjaldinu sem að er skilað til Íslendinga á fullveldisdaginn og í upphafi jólamánaðarins hvert ár,“ segir Sigmundur. „Það er líka mikilvægt að fyrirkomulagið verði til þess fallið að auðlindanýting sé áfram hagkvæm. Menn sjái sér hag í því að gera sem mest úr auðlindinni. Búa til sem mest verðmæti. Þess vegna tengjum við þetta við arðbæra nýtingu, að koma til móts líka við minni fyrirtæki til að viðhalda fjölbreytileika í rekstri, t.d. í sjávarútvegi og í tengslum við byggðirnar þar sem framleiðslan og verðmætasköpunin fer fram.“

„Þetta mun bjarga mannslífum“

Einnig er það stefna flokksins að tryggja rétt allra landsmanna á almennum og reglulegum heilbrigðisskimunum og leggur flokkurinn til að slíku skimunarferli verði komið á hér á landi. Það eigi á endanum að spara peninga fyrir heilbrigðiskerfið og bjarga mannslífum, að sögn Sigmundar.

„Þeir sem eru 40 ára og eldri fái boð á þriggja ára fresti í almenna heilbrigðisskimun. Ef menn telja ástæðu til þá sé hægt að kalla eftir því oftar og þeir sem eru yngri en 40 ára geta sóst eftir þessu líka ef sérstakar ástæður kalla á það,“ segir hann. „Þetta hefur forvarnargildi og hjálpar til við að finna hætturnar. Fyrir vikið verður auðveldara og ódýra að takast á við vandamálin þegar þau finnast en það sem skiptir kannski hvað mestu máli er að þetta mun bjarga mannslífum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert