Flokkur fólksins hefur birt framboðslista sinn í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, skipar efsta sæti listans.
Georg Eiður Arnarsson, hafnarvörður og trillukarl, skipar annað sætið og Elín Íris Fanndal, félagsliði og leiðsögumaður, er í þriðja sæti á listanum.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur gegnt formennsku í Hagsmunasamtökum heimilanna frá árinu 2017 og barist fyrir réttindum fólks í kjölfar efnahagshrunsins 2008, ekki síst þeirra sem misstu heimili sín, að því er segir í tilkynningu frá flokknum.
Ásthildur hefur einnig verið virk í réttindabaráttu kennara og var kjörin í stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara árið 2018.
Listinn í heild sinni:
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
- Georg Eiður Arnarsson, hafnarvörður/trillukarl
- Elín Íris Fanndal, félagsliði/leiðsögumaður
- Sigrún Berglind Grétarsdóttir, leikskólaliði/öryrki
- Stefán Viðar Egilsson bílstjóri
- Inga Helga Bjarnadóttir, sjúkraliði/öryrki
- Hallgrímur Jónsson vélamaður
- Bjarni Pálsson bakari
- Jórunn Lilja Jónasdóttir öryrki
- Heiða Rós Hauksdóttir öryrki
- Jóna Kerúlf, eldri borgari
- Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir, eldri borgari
- Ríkarður Óskarsson öryrki
- Jón Þórarinn Magnússon golfvallarstarfsmaður
- Guttormur Helgi Rafnkelsson, vélvirki/eldri borgari
- Gunnþór Guðmundsson, eldri borgari
- María G. Blómkvist Andrésdóttir, eldri borgari
- Hjálmar Hermannsson, matsveinn/eldri borgari
- Ámundi Hjörleifs Elísson, eldri borgari
- Ísleifur Gíslason, flugvirki/eldri borgari