Viðreisn kynnir kosningaáherslur sína á blaðamannafundi í höfuðstöðvum flokksins að Síðumúla í Reykjavík klukkan 14.
Sýnt verður frá fundinum í beinni útsendingu á mbl.is.
„Skýrt verður hvernig stefnumál Viðreisnar verða fjármögnuð, hvaða þýðingu þau hafa fyrir fjárhag heimilanna og hvaða þýðingu þau hafa fyrir fjárhag ríkisins,“ segir í fréttatilkynningu um blaðamannafundinn.