„Við lögðum til breytingatillögu við þessa viðeigandi löggjöf um það á síðastliðnu þingi, með það að markmiði að það væri mjög skýrt í lögunum að þú gætir hafnað vinnu sem hentar þér ekki vegna þess að þú ert kannski allt og menntaður fyrir starfið. Við förum ekki að senda kennara til að afgreiða í ísbúð, bara til að senda hann í einhverja vinnu,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, um áherslur Pírata í atvinnumálum.
Þórhildur kom fyrir hönd Pírata í síðari pallborðsumræður formannanna í Dagmálum, ásamt Katrínu Jakobsdóttur, Ingu Sæland og Sigmundi Davíð.
Spurð hvort hún teldi það fyrir neðan virðingu kennara, að afgreiða í ísbúð svaraði Þórhildur: „Já að vissu leyti, þá er það það.“
Sjá má þáttinn í heild sinni hér:
Sjá má umræður álitsgjafa um þáttinn hér: