Ari Páll Karlsson
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, talsmaður Pírata, segir ekkert annað í stöðunni en að boðið verði til uppkosningar í kjölfar bókunar Kristínar Edwald eftir fund landskjörstjórnar. Hið nýkjörna Alþingi mun nú skera úr um hvort kosningin í kjöræminu standi eður ei.
Í bókun landskjörstjórnar kom fram að ekki hafi borist staðfesting frá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis um að meðferð kjörgagna hefði verið fullnægjandi.
Teljið þið í Pírötum að ógilda ætti kosninguna?
„Já, okkar oddviti er náttúrulega búinn að kæra þessa framkvæmd og fer fram á endurtalningu. Við erum sammála honum,“ segir Þórhildur Sunna.
Og ætti í kjölfarið að boða til uppkosningar?
„Við sjáum ekki hvað er annað í stöðunni og mér sýnist landskjörstjórn vera að segja það sama.“