Skrifstofa Alþingis veit ekki hvort Erna Bjarnadóttir, fyrsti varaþingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi, muni fylgja Birgi Þórarinssyni yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
Morgunblaðið greindi frá því í dag að Birgir hefði sagt skilið við flokkinn.
„Skrifstofa Alþingis hefur ekki þær upplýsingar,“ segir í svari Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra þingsins, við fyrirspurn mbl.is um hvort Erna fylgi Birgi á milli flokkanna.
Aðspurð bendir hún á að varaþingmenn færist ekki sjálfkrafa á milli flokka ef aðalmaður skiptir um flokk.
Birgir sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði ráðfært sig við trúnaðarmenn Miðflokksins í Suðurkjördæmi áður en hann lét af því verða að ganga til liðs við sjálfstæðismenn.
Þar á meðal við Ernu, sem er annar maður á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi og varamaður hans á þingi.
„Það er öflugur varamaður, sem ég er með og hún [Erla Bjarnadóttir] styður mig í þessari ákvörðun,“ sagði Birgir.
Ekki hefur náðst í Ernu í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Birgir hefur fengið kaldar kveðjur frá sínum gömlu félögum í Miðflokknum eftir ákvörðun hans um að yfirgefa flokkinn og færa sig yfir í þingflokk Sjálfstæðisflokksins, sem Morgunblaðið greindi frá í morgun.
Fyrrum samflokksmenn segja ákvörðunina svik við kjósendur en þingmenn Sjálfstæðisflokksins taka Birgi opnum örmum.
Ekki er hægt að segja að tilfærsla manna milli flokka sé algeng svona stuttu eftir kosningar, segir Ragna innt eftir því.
Við tilfærslu Birgis tapar þingflokkur Miðflokksins einfaldlega einum þingmanni á meðan þingflokkur Sjálfstæðisflokksins bætir við sig einum þingmanni.
Þetta breytir ekki stöðu Miðflokksins sem þingflokks, að sögn Rögnu.
Vísar hún í 85. lagagrein um þingsköp Alþingis en þar segir:
„Skipi þingmenn sér í þingflokka skulu þeir velja sér formann er komi fram fyrir þeirra hönd
gagnvart forseta og öðrum þingflokkum og þingmönnum.
[Í þingflokki skulu vera a.m.k. þrír þingmenn. Tveir þingmenn geta þó myndað þingflokk
enda sé til þingflokksins stofnað þegar að loknum kosningum og þingmennirnir kosnir á listum sama stjórnmálaflokks eða sömu stjórnmálasamtaka.
Enginn þingmaður má eiga aðild að fleiri en einum þingflokki.]“
Aðspurð segir Ragna fjárframlög til þingflokkanna tveggja koma til með að breytast við tilfærslu Birgis á milli þingflokka og að það sé í samræmi við reglur um greiðslu framlaga til þingflokka.
„Áhrifin eru einhver en tæpast stórvægileg.“