Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti Viðreisnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórdísi Lóu.
„Ég býð mig fram til að leiða lista Viðreisnar í Reykjavík í prófkjöri flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ég brenn fyrir borg sem rúmar fjölbreytta flóru einstaklinga – opnu og frjálsu samfélagi sem tekur stór skref í átt að raunverulegum aðgerðum í loftslagsmálum, húsnæðismálum, skipulagsmálum, skóla- og velferðarmálum,“ segir Þórdís.
„Öll mín hugsjón miðar að endingu að lifandi og skemmtilegri borg. Þessi mál vil ég nálgast með jafnrétti og mannréttindi að leiðarljósi, fyrir mér er það aldrei kvöð og kostnaður fyrir samfélagið, heldur tækifæri og alvöru fjárfesting.“
Í tilkynningu Þórdísar kemur fram að hún hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, af hagsmunabaráttu og stjórnun stærri og minni fyrirtækja ásamt því að hafa í áratug stýrt velferðarþjónustu í Reykjavík.
„Þetta kjörtímabil hef ég leitt starf Viðreisnar í borginni og lagt mig fram við að skoða ólík sjónarmið til að komast að farsælum lausnum. Framtíðin leynist í samvinnu margra flokka, og ég bý yfir yfirsýninni sem þarf til að sú samvinna beri árangur. Með þá þekkingu og reynslu í farteskinu langar mig að byggja frjálst og réttlátt borgarsamfélag. Þess vegna býð ég fram krafta mína í komandi sveitarstjórnarkosningar,“ segir Þórdís.