Endurtalning á öllum atkvæðum í sveitarstjórnarkosningunum í Garðabæ hefst klukkan 16 á morgun.
Þetta staðfestir Soffía Eydís Björgvinsdóttir, formaður kjörstjórnar í Garðabæ, í samtali við mbl.is.
Beiðni barst frá Garðabæjarlistanum þess efnis að endurtalið yrði, vegna þess hve litlu munar á að listinn fengi þrjá menn kjörna í bæjarstjórn, í stað tveggja. Annar maður Garðabæjarlistans yrði á kostnað sjöunda manns Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn hlaut 49,1% atkvæða en sjö af ellefu kjörnum fulltrúum í Garðabæ.
Soffía segir að endurtalning eigi að taka töluvert styttri tíma en fyrsta talningin, þar sem búið er að flokka og telja atkvæðin í bunka. Það létti á og talning og samlagning ætti aðeins að taka um þrjá til fjóra tíma.
Niðurstaða endurtalningarinnar ætti því að liggja fyrir um og eftir kvöldmatarleytið, gangi allt samkvæmt áætlun.