„FKA stendur vaktina í íslensku samfélagi almennt og mögulega verður tekin aukavakt á Kvennaári sem nú gengur í garð,“ segir Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA, glöð í bragði. Félagið fagnaði 25 ára afmæli sínu í fyrra og nú er talið í öflugt Kvennaár 2025 í íslensku samfélagi þar sem 50 ár eru liðin frá kvennaverkfallinu. Unnur Elva er full tilhlökkunar fyrir árinu sem hefst með Viðurkenningarhátíð FKA á Hótel Reykjavík Grand þar sem konur verða heiðraðar á stórglæsilegum viðburði.
„Ísland er framarlega þegar kemur að jafnrétti og hefur verið til fjölda ára en auðvitað getum við gert miklu betur og til þess höfum við verkfæri eins og Jafnvægisvog FKA sem fyrirtæki sem eru með jafnrétti á dagskrá taka þátt í og við hvetjum til að fólk kynni sér verkefnið á heimasíðu FKA. Ég gæti talið upp endalausan lista af konum sem sett hafa mark sitt hér og byrjum auðvitað á að nefna fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta heims, Vigdísi Finnbogadóttur okkar konu.
Það vantar ekki flottar konur í ríkisstjórnina og það er ótrúlega mikilvægt að hafa Höllu Tómasdóttur nýkjörinn forseta og Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup. Allt eru þetta konur sem eru fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir og það endurspeglar kvenkraftinn sem ríkir í íslensku samfélagi í dag.“
Unnur Elva talar um að í þau 15 ár sem hún hafi verið í félaginu hafi hún aukið tengslanetið jafnt og þétt og hitt mikið af frábæru fólki. „Konur af ólíkum aldri og uppruna með alls konar sérþekkingu og á þær hef ég hlustað, lært af þeim og margar náð flugi á sínu sviði. Það hefur verið töfrum líkast að sjá konur blómstra og góðar hugmyndir lifna við. Að mínu mati er fjölbreytt starfsemi og breidd félagsskapar og nefnda innan FKA klárlega mesti styrkur félagsins,“ segir Unnur Elva og bætir við að fjölbreytni félagskvenna, samhugur og einbeitni til að vinna verkin og leysa málin hafi alltaf einkennt FKA.
„Félagsskapur eins og FKA er því gríðarlega mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf, bæði fyrirtæki og hið opinbera. Það hve langt íslenskt samfélag hefur náð í þeim efnum skrifast á nokkra þætti, meðal annars félag eins og FKA. Það er ótrúlegt þrekvirki sem mörg hafa unnið er kemur að því að rétta hlut kynjanna og FKA stendur vaktina eins og fleiri í íslensku samfélagi. Með stöðnun og bakslag í mannréttindum, jafnrétti, þá er ég sannfærð um að FKA virkar sem jákvæður þrýstingur á íslenskt atvinnulíf og stuðningur við það sem vel er gert.“