Sindri Blær Gunnarsson beið í röð á Laugaveginum í tólf klukkustundir fyrir opnun kleinuhringjastaðarins Dunkin' Donuts í gærmorgun og fær fyrir vikið sex kleinuhringi á viku í heilt ár. Hann segir kleinuhringjakortið koma sér vel í ástarmálunum og flaggar því óspart á smáforritinu Tinder.