Hvalur 9 kom með tvær langreyðar að landi á fimmta tímanum í morgun. Kristján Loftsson segir að hvalirnir hafi veiðst nálægt landi og viðureignin verið auðveld, ,,Þeir voru skotnir, thats it.“ Mávur við bryggjuna fékk sér risavaxinn morgunverð meðan flensarar brýndu flensihnífana.