Sá sem er svo heppinn að fá tækifæri til að skoða Þríhnúkagíg, gleymir því seint. Frá toppi gígsins og niður á botn eru 120 metrar í lóðréttu falli og þegar þangað er komið er hægt að komast 50 metrum dýpra með því að fara ofan í afkima hellisins. Litadýrðin er mikil og stærðin hrikaleg.