Vigdís Finnbogadóttir tók í notkun nýja íslenska talgervla við hátíðlega athöfn hjá Blindrafélaginu í dag á degi íslenskrar tungu. Talgervlarnir hafa hlotið nöfnin Karl og Dóra og eru mikil framför frá fyrri útgáfum og eru sagðir jafnast á við það besta sem gerist í þessum efnum.