Fjölmargir fylgdust með því þegar ljósin á jólatrénu sem íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum voru tendruð síðdegis. Var það hinn sex ára norsk-íslenski Jörundur Ísak Stefánsson sem tendraði ljósin á trénu í ár. Sannkallaður jólasnjór féll á höfuðborgarsvæðinu síðdegis.