Lítil arðsemi í ferðaþjónustufyrirtækjum hefur verið áhyggjuefni í gegnum tíðina hér á landi. Meðal ástæðna fyrir því er stutt tímabil á ári þar sem fyrirtækin eru í fullum rekstri, en miklar árstíðasveiflur í komu ferðamanna orsaka slíkt. Þetta segir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri.