Töluverð fækkun hefur verið í farþegaflugi innanlands frá í apríl á síðasta ári. „Við tengjum það breytingum á opinberum gjöldum þá, það voru miklar hækkanir á lendingargjöldum og farþegagjöldum sem við höfðum ekki tök á öðru en að setja út í verðlagið,“ segir Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands.