Tónlistarstundarteymið óð út fyrir hússins dyr í vikunni, í því
augnamiði að fanga framtíð rokksins í Edrúhöllinni. Þar tróð nefnilega
upp Tilbury, ný sveit Þormóðs Dagssonar sem mikið hefur verið látið
með að undanförnu. Breiðskífa sveitarinnar kemur út eftir helgi.
Í Tónlistarstund fjallar umsjónarmaðurinn, Arnar Eggert Thoroddsen, um nýútkomnar íslenskar plötur á sinn einstaka hátt. Arnar iðulega prúðmannlega klæddur þegar hann ræsir í sér álitsgjafann.