Þriðjungur Frakka of þungur

Frakkar eru að þyngjast og er um þriðjungur þjóðarinnar yfir …
Frakkar eru að þyngjast og er um þriðjungur þjóðarinnar yfir kjörþyngd Reuters

Franska þjóðin er að þyngjast og nú svo komið að tæplega þriðjungur þeirra er yfir kjörþyngd eða er að berjast við offitu, samkvæmt nýrri könnun sem unnin var fyrir frönsku heilbrigðisþjónustuna. Samkvæmt henni eru 19,8 milljónir Frakka, af 63 milljónum íbúa, yfir kjörþyngd og 5,9 milljónir eru offitusjúklingar. Hefur offitusjúklingum í Frakklandi fjölgað úr 2,3 milljónum í 5,9 milljónir á níu árum.

Samkvæmt könnuninni eru ákveðnir þjóðfélagshópar í meiri hættu og eru þeir sem eru í láglaunastörfum í mestri hættu.

Að sögn dr. Arnaud Basdevant, næringarfræðings við Parísar spítala, er sem allir aldurshópar séu í hættu og að offitusjúklingarnir verði alltaf yngri og yngri. Mun fleiri konur eru of feitar en karlar í Frakklandi.

Offita er vandamál víða um heim og lítur Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO)á offitu alþjóðlegt heilbrigðisvandamál.

Samkvæmt frönsku könnuninni þjáist einn af hverjum fimm íbúum Frakklands af offitu, sem eru með 34.800 evrur, 3,1 milljón króna, í árstekjur eða minna. Aftur á móti er einungis einn af hverjum tuttugu að glíma við offitu sem eru með 63.600 evrur í árslaun eða meira.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert