Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að hefja undirbúning að lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og Evrópu. Samgönguráðherra mun fyrstu dagana í janúar ræða við þá sem málið snertir, fulltrúa fjarskiptafyrirtækjanna, stjórn Farice og aðra hagsmunaaðila.
Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu kemur fram að Ísland hefur til skamms tíma verið tengt umheiminum með ljósleiðarastrengnum Cantat-3 sem tekinn var í notkun árið 1994 og með varasambandi gegnum gervihnött sem í dag annar vart meira en talsímaumferð. Farice-1 ljósleiðarastrengur var síðan tekinn í notkun í janúar 2004.
Stofnkostnaður við lagningu nýs strengs á bilinu 2,8-3,9 milljarðar
Stofnkostnaður við lagningu nýs sæstrengs er talinn vera á bilinu 2,8 til 3,9 milljarðar króna eftir því hvaða leið verður valin. Meðal hugmynda um útfærslu og fjármögnun er að ræða við Færeyinga sem hafa þegar ákveðið að leggja annan streng og að fjármögnun gæti orðið með svipuðu sniði og var við Farice-1 strenginn. Samkvæmt því yrði um 30% stofnkostnaðar fjármagnaður með nýju hlutafé en 70% tekin að láni til 12 ára. Stofnframlag yrði því að vera kringum einn milljarður króna.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að til greina komi annars vegar að stofna nýtt félag um lagningu nýja strengsins eða að semja við Farice um verkefnið. Verði síðarnefnda leiðin farin væri einnig hugsanlegt að ræða við fjarskiptafyrirtækin og fleiri hagsmunaaðila um að leggja fram fjármagn. Þessar leiðir yrðu kannaðar á næstu dögum og vikum. Ráðherra segir að engan tíma megi missa og segir brýnt að koma málinu af stað hið fyrsta.
Verði ákvörðun tekin um lagningu strengs á næstu vikum má gera ráð fyrir að undirbúningur og rannsóknir taki mestan hluta næsta árs og að lagning strengs færi fram árið 2008. Með því móti væri unnt að taka nýjan streng í notkun seint á árinu 2008, að því er segir í tilkynningu.
Í júní síðastliðnum skipaði samgönguráðherra starfshóp til að leggja á ráðin um öruggt varasamband við útlönd. Var honum falið að leggja fram tillögu um hvernig tryggja megi varasamband fjarskipta við umheiminn í framtíðinni og eftir atvikum skila útfærðum tillögum um fjármögnun, eignarhald og framkvæmdatíma. Starfshópurinn lagði fram tillögu að aðgerðaáætlun en skoðaðir voru einkum þrír möguleikar á lagningu nýs strengs og var einkum staldrað við lagningu strengs milli Íslands og Írlands með tengingu við Færeyjar.