Einn af hverjum fimm starfsmönnum tækirisans IBM er nú staðsettur á Indlandi, og hefur starfsfólki fyrirtækisins þar í landi fjölgað um 40% síðan í fyrra, að því er greint var frá í gær. Tala starfsmanna á Indlandi er nú 73.000, en í Bandaríkjunum hafa þeir verið um 125.000 að jafnaði undanfarin ár.
Líkt og mörg önnur hátæknifyrirtæki hefur IBM í auknum mæli nýtt sér lágan launakostnað sem býðst á Indlandi, jafnvel þótt um sé að ræða mjög sérhæft starfsfólk. Fjöldi starfsmanna IBM á Indlandi 2003 var aðeins um níu þúsund.
Auk lágs launakostnaðar segjast forráðamenn IBM leggja áherslu á vaxandi markað á Indlandi, þar sem þeir vænti um eins milljarðs dollara í tekjur á þessu ári, en þær námu 700.000 dollurum í fyrra.