Hollenska þingið hefur skipað nefnd, sem á að skoða hvort það sé hagkvæmt að búa til landfyllingu við Norðursjávarströnd landsins. Til stendur að búa til 50 km langa eyju sem verður í laginu eins og túlípani. Mun eyjan virka bæði sem varnargarður og eins stendur til að byggja þar hús.
Hollenski stjórnmálamaðurinn Joop Atsma er hvatamaður að verkefninu en samkvæmt hugmyndum hans verður eyjan 100 þúsund hektarar að stærð. Atsma reiknar með að verðmæti byggingarlandsins, sem þannig verður til, verði jafnvirði um 800 milljarða króna.
Umhverfisverndarsinnar eru lítið hrifnir og benda á að framkvæmdin geti haft allskonar ófyrirséð áhrif á vistkerfið, bæði í sjónum og á landi.
Þá sýnist sitt hverjum um það hvernig eyjan á að líta út. Einn hollenskur bloggari sagði, að sér þætti mun meira viðeigandi að eyjan líti út eins og risastórt kannabisjurtarblað.