Fyrr í vikunni fór að bera á sögusögnum þess efnis að leikurinn Duke Nukem Forever, sem hefur verið í framleiðslu frá árinu 1997, væri loks tilbúinn og yrði gefinn út fyrir árslok. Nú hefur George Broussard, forstjóri 3D Realms sem er að gera leikinn, sagt að þessar sögur séu bara bull og vitleysa og leikurinn verði gefinn út þegar hann er tilbúinn.