Dmitry Medvedev Rússlandsforseti segir að gera þurfi allt sem hægt er til að fá lén skráð með kýrilísku letri á netinu. Það væri mikilvægt fyrir rússneska tungu og rússnesku þjóðina.
Medvedev er duglegur að nota netið, og hefur látið hafa eftir sér að hann slökkvi aldrei á tölvunni sinni.
Kýrilískt letur er notað í Rússlandi, Búlgaríu og Serbíu. Lengi hefur verið rætt um möguleika á að koma upp alþjóðlegum lénastaðli (Internationalised Domain Names), en ekki hefur hann enn litið dagsins ljós.