Lexus eru nú sem fyrr í efsta sætinu á lista J.D.Power yfir áreiðanlegustu bílategundirnar, en að þessu sinni hefur Buick, sem Lexus deildi fyrsta sætinu með í fyrra, fallið í sjötta sæti, að því er greint var frá í dag.
Er þetta fjórtánda árið í röð sem Lexus, sem Toyota framleiðir, situr í efsta sæti listans.
Listinn er byggður á könnun J.D. Power á reynslu fyrstu eigenda bíla á þriggja ára tímabili. Tilkynnt var um 120 bilanir á hverja 100 Lexus-bíla. Land Rover lenti í neðsta sæti, með 344 bilanir á hverja 100 bíla.
Næst-áreiðanlegasta tegundin er Cadillac, í þriðja sæti er Mercury og Toyota í fjórða.