Japanskur vísindamaður segir að honum hafi tekist að kenna mjaldri að „tala" með því að nota hljóð til að vísa á hluti. Hefur hvalurinn, sem heitir Nack, lært að gefa frá sér hljóð og „nefna þannig þrjá mismunandi hluti. Þá þekkir hvalurinn hljóðin þegar þau eru leikin fyrir hann af segulbandi.