Kínverskt náttúrulyf sem kalla mætti á íslensku Graðgeitargresi (horny goat weed), gæti komið í stað Viagra, að sögn ítalskra vísindamanna í Mílanó. Jurtin hefur lengi verið talin auka kyngetuna en rannsóknin beindist að því að kanna hvort hægt væri að búa til nýtt lyf gegn ristruflunum.