Viðgerð lokið hjá Nova

Tekist hefur að gera við bilun sem varð í farsímakerfi Nova í morgun. Ekki var hægt að að hringja heðfbundin símtöl í kerfinu en hægt að hringja myndsímtöl, senda SMS og nota netþjónustu. Bilunin stóð í rúmar tvær klukkustundir. Félagið ítrekar í tilkynningu afsökunarbeiðni til viðskiptavina og annarra sem urðu fyrir óþægindum vegna þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert