Tímaritið New Scientist segir frá nýrri rannsókn portúgalskra vísindamanna sem segja að það geti minnkað krabbameinshættuna af steikaráti að marinera steikina í nokkrar stundir í víni eða bjór.
Lengi hefur verið vitað að í steiktu eða grilluðu kjöti myndast tiltölulega mikið af krabbameinsvaldandi efnum sem nefnast heterocyclic amines, HA. Hitinn sem myndast við að steikja eða grilla breytir náttúrulegum sykrum og amínósýrum í kjöti í umrædd HA-efni.
Ekki er þó talið a marineringin breyti miklu um hættuna og kjötið þarf að liggja í leginum í allt að sex stundir til að áhrifin verði umtalsverð. En áður hefur verið sýnt að hægt er að minnka magn HA-efnanna í kjúklingi með því að marinera hann í ólífuolíu, sítrónusafa eða hvítlauksdressing.