Þýskt fyrirtæki sýndi æði sérstaka flugvél, sem kallast Micro Air Vehicle, á stórri flugsýningu sem fer nú fram í Asíu. Microdrones GmbH segir að hægt sé að nota vélina, sem er ómönnuð, á ýmsa vegu. T.d. sé hægt að nota hana fyrir myndatökur úr lofti og þá megi nota hana í baráttunni gegn hryðjuverkum.