Veiruvarnafyrirtækið Trend Micro varar við nýrri útgáfu af tölvuorminum Conficker, sem einnig er nefndur Downadup eða Kido. Er ormurinn talinn hafa smitað meira en 15 milljónir tölva frá því hann kom fyrst fram í nóvembeer. Segir Trend Micro að reiknað sé með að nýja útgáfan verði virk á morgun 1. apríl.
Fyrirtækið segir, að veiran sé svo öflug, að það skipti ekki máli hversu virk veiruvörnin sé í tölvunni, stýrikerfi hennar verði að hafa vissan Microsoft „patch" sem beri nafnið: MS08-067 og kom út 23. október 2008.