Samtök fjármálafyrirtækja, SFF, vara við spilliforriti á netinu, svokölluðum Nadebanker Trójuhesti. Forritið dreifir sér í gegnum netið, fylgist með tölvunotkun og sækir upplýsingar í tölvur notenda í þeim tilgangi að misnota þær. Spilliforritinu virðist m.a. ætlað að komast yfir aðgangsupplýsingar netbankanotenda.
Í tilkynningu Póst- og fjarskiptastofnunar segir að um sé að ræða sérstakar tegundir Trójuhesta sem ná aðallega bólfestu í Windows stýrikerfum. Eitt spilliforritið sé t.d. sérstök útgáfa af svokölluðum Zeus Trójuhesti, annað tvíþætt og nefnist „Bankpatch“ og „Nadebanker.“ Þau sækist eftir því að komast yfir viðkvæmar persónuupplýsingar, svo sem aðgangsupplýsingar notenda netbanka. Þá segir að ítök þeirra teygi sig inn í vefsjá einkatölva, þar sem þau geti hlerað samskipti við netbanka og jafnvel náð stjórn á vefsjánni óséð.
Í tilkynningu SFF segir að ekkert fjárhagstjón hafi orðið hér á landi til þessa af völdum Nadebanker, en reynslan frá nágrannaríkjum Íslands kenni að mikilvægt sé að gæta fyllsta öryggis við netnotkun til að koma í veg fyrir slíkt.
Þá segir að ljóst sé að öryggi tölva margra netnotenda sé ábótavant og þær liggi því vel við höggi tölvuþrjóta.
Af þessu tilefni vilja Póst- og fjarskiptastofnun og SFF ítreka fyrir netnotendum að tryggja að tölvur þeirra hafi viðurkennda vírusvörn og að stýrikerfi og önnur forrit séu ávallt með nýjustu uppfærslum. Dæmi um forrit sem Nadebanker hefur notað sem smitleið eru Adobe Acrobat, Apple Quick Time, Real Player og Java.
Á heimasíðu SFF má finna gátlista um gagnaöryggi á netinu með upplýsingum um hvað ber almennt að varast við netnotkun og meðferð aðgangsupplýsinga. Þá er einnig að finna upplýsingar um netöryggi á síðu Póst- og fjarskiptastofnunar, netoryggi.is
Brýnt er fyrir notendum netbanka að fylgjast reglulega með stöðu yfirlits og sannreyna að upplýsingar séu réttar áður en greiðsla í netbanka er samþykkt. Allir notendur netbanka sem ekki eru með nýjustu uppfærslur á forritum og stýrikerfi og uppfærðar vírusvarnir eru í áhættuhópi.