„Vísindamenn hafa fundið frekari vísbendingar um að svonefnd hobbítabein, sem fundust í helli á afskekktri indónesískri eyju, séu bein áður óþekktrar tegundar manna, en ekki dvergvaxinna nútímamanna.
Beinin fundust á eyjunni Flores fyrir um það bil sex árum. Niðurstöður fyrstu rannsókna á beinunum vöktu mikla athygli þegar skýrt var frá þeim í október 2004. Þær bentu til þess að á eyjunni hefðu áður lifað óþekkt tegund sem líktist meira berfættum hobbítum í skáldsögum en nútímamanninum. Nokkrir vísindamenn drógu þó þessar niðurstöður í efa og töldu að um væri að ræða bein dvergvaxinna nútímamanna, eða pygmýa.
Niðurstöður frekari rannsókna, sem birtar voru í tímaritinu Nature, benda hins vegar til þess að hobbítarnir hafi verið áður óþekkt tegund, sem nefnd hefur verið Flores-maðurinn, eða Homo floresiensis, og tilheyri ekki tegundinni Homo sapiens, eða hinum viti borna manni.
Flores-maðurinn er talinn niðji Homo erectus, hins upprétta manns, sem flutti sig frá Jövu til Flores og annarra eyja fyrir um það bil milljón ára.
Flores-maðurinn var um metri á hæð, 30 kg þungur og stærð heilans var aðeins um þriðjungurinn af heila nútímamannsins. Talið er að Flores-maðurinn hafi lifað fyrir um 8.000 árum.