Frá og með klukkan eina mínútu yfir miðnætti í kvöld að bandarískum tíma munu hefðbundnar sjónvarpsútsendingar með loftneti heyra sögunni til. Upphaflega stóð til að tímamótin yrðu í febrúar en þeim var frestað vegna tæknilegra örðugleika.
Þess í stað munu Bandaríkjamenn frá og með morgundeginum horfa á sjónvarpið í gegnum stafrænar útsendingar sem taka þar með við af hliðrænum sendingum.
Sjónvarpið gegnir stóru hlutverki í lífi margra Bandaríkjamanna og féllst Bandaríkjaþing á að fresta breytingunni af tillitsemi við um 6,5 milljón heimili sem ekki voru undir umskiptin búin.
Aðallega var um að ræða fatlað fólk og eldri borgara sem áttu erfiðara með að ná sér í nauðsynlegan búnað en aðrir.
Sérstök hjálparsímalína, 1-888-CALL-FCC, hefur verið opnuð af þessu tilefni.
Ofmælt var í fyrri útgáfu fréttarinnar að umskiptin þýddu dauða loftnetssjónvarps vestanhafs og hefur það verið leiðrétt. Lesendum er þökkuð ábendingin.