Súkkulaðát fyrir vísindin

Leikkonan Brooke Shields í félagi við fágætan súkkulaðiskúlptúr.
Leikkonan Brooke Shields í félagi við fágætan súkkulaðiskúlptúr. Reuters

Breskir vísindamenn leita nú logandi ljósi að konum sem eru tilbúnar að fórna sér í þágu vísindanna og borða súkkulaði á hverjum degi í heilt ár.

Rannsóknin er á vegum háskóla og spítala í Norwich í Englandi og er ætlunin að komast að því hvort súkkulaðineysla getur dregið úr hættu á hjartasjúkdómum. Þeir leita því nú að 40 konum sem eru tilbúnar að taka verkefnið að sér.

Flestar konurnar munu þurfa að borða tvö stykki af sérstöku belgísku eðalsúkkulaði á dag og gangast undir ýmsar hjartarannsóknir.

Aðrar munu verða að láta sér venjulegt súkkulaði nægja svo einnig sé hægt að kanna lyfleysu-áhrifin.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert