Þeir sem senda sms-skilaboð undir stýri margfalda líkurnar á því að þeir valdi banaslysi í umferðinni. Samkvæmt nýrri rannsókn í Bandaríkjunum eru þeir 23 sinnum líklegri til að valda banaslysi en ökumenn sem einbeita sér að akstrinum.
Rannsóknin var gerð hjá tæknistofnuninni VTTI í Virginíuríki, en hún sérhæfir sig í rannsóknum sem miða að auknu samgönguöryggi. Fréttavefur danska ríkisútvarpsins hefur eftir Jesper Sølund, formanni umferðaröryggisráðs Danmerkur, að rannsóknin sé mjög áhugaverð og sýni að banna beri ökumönnum með lögum að senda sms-skilaboð undir stýri.