Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hefur slegist í hóp þeirra sem taka þátt í ráðstefnunni You are in Control sem haldin verður á Hótel Nordica 23. og 24. september nk. Sigurjón mun spá í framtíð stafrænnar tækni og viðskipta og hvaða áhrif hún muni hafa á kvikmyndageirann, en You are in Control fjallar um nýjungar í stafrænni menningarmiðlun, markaðssetningu og útgáfu. Ráðstefnan er nú haldin í þriðja sinn.