Þrír vísindamenn deila Nóbelsverðlaununum í eðlisfræði, sem að þessu sinni eru veitt fyrir rannsóknir sem leiddu til þróunar ljósleiðara og hálfleiðara.
Verðlaunahafarnir heita Charles Kao, sem er breskur ríkisborgari og býr í Hong Kong, og Willard Boyle ogGeorge Smith sem báðir eru bandarískir.
Í umsögn verðlaunanefndarinnar segir að vísindamennirnir þrír hafi búið til þau tæki, sem skópu upplýsingatæknibyltingu nútímans. Kao fékk verðlaun fyrir ljósleiðarann og segir nefndin, að ef allir ljósleiðarar í heiminum yrði lagðir saman væru þeir yfir 1 milljarður kílómetra. Uppgötvun Kaos þýði, að hægt sé að senda texta, tónlist, myndir og myndskeið umhverfis jörðina á augabragði.
Boyle og Smith fá verðlaunin fyrir rannsóknir á hálfleiðurum, svonefndum CCD skynjurum, sem séu rafrænt auga stafrænna myndavéla. Segir verðlaunanefndin að þessi uppfinning hafi valdið byltingu í ljósmyndatækni því hægt var að nema ljós með rafrænum hætti í stað þess að nota ljósmyndafilmu.
Þessi tækni er einnig notuð í mörgum lækningatækjum.