Fornleifafræðingar hafa fundið vísbendingar um annan forsögulegan hring steindranga skammt frá steinhringnum við Stonehenge á Salisburysléttu í Englandi.
Leifar minni hringsins hafa fundist í rúmlega tveggja kílómetra fjarlægð frá Stonehenge. Það er að finna vestan árinnar Avon og er nefnt „Blástonehenge“ eftir 25 velskum bláum sandsteinum sem mynduðu drangahringinn.
Uppgröftur hefur leitt í ljós að einfaldur hringurinn hafi verið um 10 metrar í þvermál og umhverfis steinhringinn hafi verið skurður. Drangarnir voru fjarlægðir fyrir þúsundum árum en holur þar sem steinarnir stóðu benda til að þeir hafi verið sóttir í Preselifjöll í Wales, sem eru í 240 km fjarlægð.
Gerðið var við enda rúmlega tveggja kílómetra götu sem liggur frá Avoná til Stonehenge á steinöld. Skurðurinn umhverfis var gerður um 2400 árum fyrir fæðingu Krists. Örvaroddar sem fundist hafa innan gerðisins benda hins vegar til að það hafi verið reist um 500 árum áður.